Er heimurinn að hlýna eða kólna?

Það eru væntanlega fáir sem efast um að hlýnað hafi á jörðinni síðustu 100 ár enda sýna mælingar það svo ekki verði um villst. Þessar 0,7° gráður eða svo sem hlýnað hefur um í heiminum frá aldamótunum 1900 teljast varla vera nein katastrófa en haldi hlýnunin áfram á þessari öld með auknum hraða, gæti gamanið farið að kárna eins og margoft hefur verið varað við.

En hér eru ekki allir á sama máli, því inn á milli heyrast raddir um að loftslag á jörðinni stjórnast lítið sem ekkert af athöfnum manna – það hafi alls ekkert hlýnað undanfarin ár og framundan sé áratugalangt kuldaskeið af náttúrulegum orsökum en aðallega þá vegna minnkandi sólvirkni. Sumir hafa undanfarið jafnvel talið að kuldaskeiðið mikla væri í þann veginn að hefjast eins og þessar tilvitnanir segja til um:

It is likely that 2011 will be the coolest year since 1956, or even earlier, says the lead author of a peer-reviewed paper published in 2009. Our ENSO - temperature paper of 2009 and the aftermath by John McLean

„Global temperatures have suddenly returned to the same level they were in 1980 and are expected to drop much further. Given the momentum of the solar hibernation, it is now unlikely that our generation or the next one will return to the level of global warming that we have just passed through. Again, global warming has ended. It was always caused by the Sun and not mankind. The global cooling era has begun.“ Space and Science Research Center, February 4, 2011

Þessi síðari tilvitnun er frá því í febrúar nú í ár eftir að hitinn hafði fallið í byrjun árs. Ekki reyndist sú kólnun langvinn. Þeir sem kallast efasemdarmenn um hnatthlýnun hafa reyndar lengi bent á að mikið hitafall sé yfirvofandi eða í þann veginn að skella á. Slíkt hefur hingað til látið á sér standa eða frestast, því eftir hvert bakslag hefur hitinn náð sér á strik svo um munar. Myndir hér að neðan sýnir hitaþróun jarðar frá 1979 samkvæmt gervitunglagögnum UAH:

Hitalínurit UAH Jun2011

Sá þáttur sem hefur einna mest skammtímaáhrif á hitafar jarðar en ENSO sveiflan í Kyrrahafi, sem segir til um hvort hinn hlýji El Nino eða hin kalda La Nina ráði ríkjum hverju sinni en mestu áhrifin eru af völdum sterks El Nino árið 1998 enda var það ár það hlýjasta samkvæmt þessum gögnum. Frá 1950 hefur þróunin verið þannig (rautt = El Nino / blátt = La Nina):

ENSO 1950-2011

- - - - -

Ef við setjum þessar tvær myndir saman fyrir árin 1979-2011 þannig að ártölin stemma, þá sést vel hvað átt er við. Hitaþróunin eltir ENSO sveiflurnar en er þó oftast nokkrum mánuðum á eftir. Eina tímabilið sem passar illa er 1992-1993 en það er vegna kælingar af völdum stóra eldgossins í Pinatupo á Filippseyjum:

ENSO+UAH 1979-2011

Í þessum samanburði kemur það í ljós að hitaferill hefur smám saman verið að lyfta sér upp fyrir ENSO sveiflurnar eins og ég stilli þessu upp. Með öðrum orðum: Það er undirliggjandi hlýnun í gangi sem ekki verður skýrð með tíðni El Nino og La Nina. Á síðasta ári var uppi kalt La Nina ástand (lengst til hægri) sem dugði þó ekki nema til þess að lækka hitann rétt niður fyrir meðallag en stóð stutt. Nú þegar hlutlaust ENSO-ástand er komið á á ný hefur hitinn rokið aftur upp (+0,31°) og það langt yfir meðallag. Til að ná slíkri hæð á árunum fyrir 1995 hefði hinsvegar þurft eindregið El Nino ástand.

Annað mikilvægt er að hitaþróun síðustu ára virðist ekki vera í samræmi við þá minnkandi sólvirkni sem verið hefur síðustu ár - allavega ekki enn sem komið er. Vísbendingar eru um langvararandi sólardeyfð á næstu áratugum en hvaða áhrif það mun hafa hafa veit ég ekkert um. Allavega virðumst við ennþá vera í ferli hlýnunnar sem erfitt er að útskýra án þess að íhuga þann möguleika að eitthvað gæti kannski komið við sögu sem ef til vill hefur eitthvað með mannkynið að gera.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Hvað - ætlar engin að segja að það sé ekki að hlýna og að við séum að fara í tímabil mikillar kólnunar á næstunni - þannig að við verðum að bíða áfram með allar aðgerðir sem þó byggjast á vísindalegum mælingum... Er eitthvað að kulna yfir rökhyggju "efasemdamanna"..?

PS. Hér er málatilbúnaður John McLean tekin fyrir - það stendur ekki steinn yfir steini hjá honum frekar en mörgum öðrum "efasemdamönnum" - The Day After McLean, þar má m.a. sjá eftirfarandi graf með skírskotun í spá hans:

McLean is batshit insane

Sveinn Atli Gunnarsson, 26.7.2011 kl. 08:42

2 Smámynd: Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)

Fínn pistill.

Þetta Space and Science Research Corporation er líka dálítið fyndið fyrirbæri þegar maður les vefsíðuna þeirra. Ekki eru þetta nú traustvekjandi samtök. Þeir tala sjálfir um að þeir taki ekki við fjármagni frá einstaklingum og stofnunum sem eru með fyrirframgefnar hugmyndir um hnattræna hlýnun en eru svo sjálfir augljóslega með sínar eigin fyrirframgefnu hugmyndir.

Grein um „kenningu“ þessa John L. Casey er sögð ritrýnd en ég fann hana hvergi nema á vefsíðunni hans. Þessi maður hefur engar greinar birt í vönduðum ritrýndum vísindaritum. Ég finn ekki neitt. Lítið annað en pólitík virðist drífa hann áfram.

Það er með öðrum orðum ekkert mark takandi á þessum John L. Casey og samtökunum hans.

- Sævar

Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is), 26.7.2011 kl. 10:25

3 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Sævar:

Það er sorglega algengt meðal "efasemdamanna" að þeirra málatilbúnaður stenst ekki skoðun. Meðal "efasemdamanna" er of mikið til af gervigreinum og/eða lélegum rannsóknum sem oft á tíðum eru notaðar sem einhverskonar heimildir í umræðunni um loftslagsmálin - eins og þeir John og John sem nefndir eru til sögunnar í pistlinum hér að ofan eru báðir gott dæmi um.

En tek allavega undir með þér, Sævar, að pistill Emils er fínn, enda kemur hann með fróðlegan vinkil á umræðuna að vanda.

Sveinn Atli Gunnarsson, 26.7.2011 kl. 11:23

4 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Takk fyrir þessar viðbótaupplýsingar.

Því má bæta við að John L. Casey er fyrrum ráðgjafi Hvíta hússins vegna geimferðaáætlana og er nýbúinn að gefa út bókina Cold Sun sem gefur tóninn fyrir yfirvofandi eða meinta hnattkólnun.

Stundum getur reyndar verið ágætt að kynna sér hvað svokallaðir efasemdarmenn hafa fram að færa, einn daginn gæti einhver þeirra rambað á einhver sannindi.

Emil Hannes Valgeirsson, 26.7.2011 kl. 16:58

5 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Það geta svo sem alveg verið einhver sannindi í einhverjum afkimum "efasemdamanna" en að þeir muni snúa loftslagsvísindum á hvolf einhvern daginn sé ég nú ekki fyrir mér. Og það er fyrst og fremst vegna þess að rökfærslur þeirra hanga ekki saman...og það er í raun ekkert nýtt hjá þeim John og John (þó hann hafi verið viðriðinn geimferðaáætlunina)... Reyndar tel ég að fáir skoði rökfærslur "efasemdamanna" betur en t.d. við Höski á loftslag.is - og satt best að segja er ekkert í þeirra röksemdum sem fella loftslagsfræðin sem slíka og í sumum tilfellum er um beinar rangfærslur að ræða. Í sambandi við bók John L. Casey, þá finnst mér alltaf kjánalegt þegar lýsing bóka (eins og t.d. Cold Sun) byrjar á einhverju stríði við Al Gore - sjá tengilinn Cold Sun - sú nálgun virðist í flestum tilfellum vera byggð á pólitískum nótum sem ekkert hefur með vísindi að gera sem slík.

Sveinn Atli Gunnarsson, 27.7.2011 kl. 00:22

6 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Eiginlega klingja allar viðvörunarbjöllur þegar menn byrja málflutning sinn á að tala um Al Gore, eins og hann sé upphaf og endir alls í loftslagsumræðunni.

Emil Hannes Valgeirsson, 27.7.2011 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband