Mikið og lítið um ís á Suðurhveli

Eins og venjulega á þessum árstíma er hafísinn í lágmarki við Suðurskautslandið og á næstu vikum mun hafísinn fara að aukast á ný eftir því sem sólin lækkar þar á lofti. Þegar vetur gengur í garð á suðurhveli vex ísinn hratt og örugglega í allar áttir án þess að meginlönd nái að hefta útbreiðsluna. Á suðurhvelinu er annars gríðarlega mikill munur á hafís eftir árstíðum, miklu meiri munur en á norðurhveli. Mestur hluti íssins þarna suðurfrá bráðnar á sumrin fyrir utan einstaka hafísbreiður meðfram ströndinni en það er aðallega austan við Antarktíkuskagann sem ísinn heldur almennilega velli enda er hann þar í góðu skjóli fyrir ríkjandi vestanáttum á svæðinu.

Þróunin á útbreiðslu á suðurhveli hefur ekki verið eins dramatísk og hér í norðri og ef eitthvað er hefur hafísinn suðurfrá aukist án þess þó að hægt sé að tala um einhverja róttæka þróun í þá átt. Reyndar má segja að útbreiðsla hafíssins á Norðurhveli hafi verið að líkjast meir því sem gerist á Suðurhveli því að á Norður-Íshafi hefur bráðnun aukist mjög á sumrin á meðan vetrarútbreiðslan hefur breyst minna. Andstæður milli árstíða hafa því farið farið vaxandi á norðurhveli og hlutfall fyrstaárs-íss aukist á kostnað eldri og lífseigari hafíss.

Á myndinni hér að neðan sést vel munur á útbreiðslu hafíssins á suðurhveli milli árstíða, til vinstri er útbreiðslan í febrúar 2010 en til hægri sýnir september 2009. (Mynd frá NSIDC)

Suðurskautsís 2009-2010

Suðurskautsís línurit

Sé litið lengra aftur í tímann sjást vel hinar miklu árstíðabundnu sveiflur í hafísnum á Suðurhveli en myndin er frá því núna um mánaðarmótin. Þetta árvar hafíslágmarkið um 2 milljónir ferkílómetra svipað og venjulega en munmargfaldast upp í 15-16 milljón km2 þegar líður á árið. Sambærilegartölur fyrir norðurhvel hin síðustu ár eru um 3-4 milljón km2 á sumrinen 13-14 milljón km2 á veturna samkvæmt því sem má lesa úr línuritum ásíðunni: Cryosphere Today

Íshellur og jöklar. Þegar talað er um ísinn á suðurhveli og framlag hans til hugsanlegrar hækkunar sjávarmáls er ekki verið að tala um hafísinn sjálfan enda hefur bráðnun hans og nýmyndun ekki áhrif á sjávarstöðu. Það eru hinsvegar hinn risastóri ísmassi uppi á landi sem skiptir máli, sjálfur Suðurskautsjökullin. Ísinn þar er um 90% af öllum ís jarðar og gæti hækkað yfirborð heimshafanna um sirka 61 metra ef hann bráðnaði allur. Það er þó enginn ástæða til að óttast slíkt jafnvel þótt eitthvað hlýni á jörðinni. Áhyggjur áhyggjusamra beinast hinsvegar einkum að vesturhluta suðurskautslandsins enda mun jökullinn þar ekki vera eins lífseigur og hinn stærri austurhluti.

Antarktíka

Einn veikasti hlekkurinn á Suðurskautslandinu er gjarnan talin vera hin mikla Ross-íshella sem hefur haldið velli eftir að hún myndaðist síðast fyrir um 3 milljónum ára. Íshellan, sem er nokkur hundruð metra þykk, nær ekki til botns og því getur hlýnandi sjór leikið um hana að neðanverðu og unnið á henni þaðan, jafnvel þótt fimbulkuldi haldist í lofti. Ef íshellan gefur sig, eins og smærri íshellur hafa reyndar verið að gera þarna, þá hverfur hluti af þeirri mótstöðu sem varnar því að jökulbreiður vesturhlutans flæði í sjó fram. Þótt vesturhlutinn virðist ekki stór er jökulmagnið svipað og á Grænlandsjökli og gæti hækkað sjávarborð um 6 metra. Þetta jökulhrun gæti gerst á næstu öldum ef heldur áfram að hlýna - þó er ekki alveg hægt að treysta á það frekar en svo margt annað.

Kortið hér að ofan með íshellunum hefur birst víða á netinu, t.d. á Loftslag.is þar sem sjálfsagt er að benda á umfjöllunina: Íshellur Suðurskautsins brotna upp.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Takk fyrir það - ég sé að þú sendur hafísvaktina að vanda

Höskuldur Búi Jónsson, 6.3.2010 kl. 15:25

2 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Hér er stöðug vöktun að venju. Bráðum verður tímabært að kanna tíðindi af norðurvígstöðvunum.

Emil Hannes Valgeirsson, 6.3.2010 kl. 19:56

3 Smámynd: Haraldur Sigurðsson

Hefur þú velt fyrir þér framtíð bókarinnar?  Ég bendi á eftirfarandi blogg: http://craigmod.com/journal/ipad_and_books/

Gaman að heyra havð þú heldur um þessa þóun. Ég held að hér sé framtíðin. Get ready!!

Haraldur

Haraldur Sigurðsson, 7.3.2010 kl. 14:58

4 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Takk fyrir linkinn Haraldur.

Það er alveg ástæða til að velta fyrir sér framtíð bókarinnar og prentmiðla þegar lestur fólks á sér sífellt meir stað í gegnum tölvuskjái. Bókin hefur samt lifað ótrúlega vel af allar tæknibyltingar hingað til og ég held að bækur verði gefnar út um langa framtíð. Vandaðar bækur eru eigulegri og varanlegri sem slíkar heldur en sem stafrænar upplýsingar sem þarfnast vélbúnaðar til að birtast. Tölvubækur hljóta samt að verða mikið notaðar í framtíðinni og eiga sjálfsagt eftir að þróast heilmikið. Fræðslubækur geta t.d. orðið til sem einskonar margmiðlunarútgáfur þar sem hægt er að blanda saman texta og lifandi myndum og hægt að uppfæra eftir þörfum.

Þetta eru annars bara vangaveltur hjá mér settar fram hér og nú. Svo get ég nefnt það að allt sem ég hef skrifað hér á blogginu ásamt myndum og athugasemdum, er ég farinn að afrita og brjóta um á snyrtilegan hátt í umbrotsforriti svo ég geti prentað það síðar út á pappír, og sé til þannig. Ég byrjaði þessa umbrotsvinnu fyrr í vetur og á marga mánuði eftir óunna. Þetta held ég að sé ágætlega varanleg geymsluaðferð.

Emil Hannes Valgeirsson, 7.3.2010 kl. 16:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband