Lítil hætta á flóðbylgjum á Íslandi

Þó að Ísland sé alþekkt fyrir sína eldvirkni og jarðhræringar getum við samt verið róleg yfir því að sambærilegir atburðir eigi sér stað hér á landi og í Japan. Ísland er vissulega á flekaskilum Norður-Atlantshafsflekans og Evrasíuflekans sem færast í sundur þannig að Atlantshafið stækkar um örfáa sentímetra á ári. Skjálftarnir eru flestir smáir en stóru skjálftarnir hér á landi tengjast þversprungukerfunum á Suðurlandi og útaf Norðurlandi. Þessi átök er þó mun vægari og allt annars eðlis en þau sem á eiga stað í Kyrrahafinu. Kyrrahafið er nánast einn stór úthafsskorpufleki sem hreyfist í heildina í norðvestur og treðst undir aðra fleka allt frá Alaska og langleiðina suður að Antarktíku. Við Japan þar skjálftinn var, kemur líka annar fleki við sögu kenndur við Filippseyjar sem eykur væntanlega á átökin og óreiðuna þarna í jarðskorpunni.

Flekaskil jarðar

Svona fyrirbæri þegar úthafsskorpa treðst undir meginlandsfleka mun vera kallað „renna“ og skapa miklu meiri átök en eiga sér stað hér. Stærstu skjálftar á Íslandi eru um eða yfir 7 á righter og orkan sem losnar úr læðingi ekki nema brot af því sem á sér stað í skjálftum nálægt 9 á righter. Minniháttar fljóðbylgjur geta hugsanlega borist að Norðurlandi ef skjálftar verða í þverbrotabeltinu fyrir norðan land, ég veit þó ekki til þess að orðið hafi tjón af þeirra völdum. Suðurlandskjálftarnir eiga upptök sín inni á landi og valda því ekki flóðbylgjum. Við þurfum engar áhyggjur af hafa af skjálftum á Faxaflóa sem gætu ógnað höfuðborginni. Hinsvegar er fjarlægur möguleiki á því að stór skriða falli úr Snæfellsjökli í næsta eldgosi sem gæti gert góða skvettu í Faxaflóanum og svo er alltaf möguleiki á að loftsteinn falli í hafið og geri góðan usla.

Hér að neðan er nánari skýringarmynd af flekaskilum tekin af síðunni: http://geographyworld.edu.tr.tc/earth_lithosphere.html Hafa má í huga að Ísland er bæði úthafshryggur á gliðnunarsprungu (oceanic spreading ridge) og einnig heitur reitur (Hot spot)

flekaskil

 


mbl.is 300 hús skoluðust burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Það er síðan ekki eingöngu stærð skjálftans sem veldur hafnarbylgjunum (tsunami) - heldur líka hvernig hreyfingin er - Upp og niður hreyfing gerir það að verkum að það myndast hola í hafflötinn (eða bunga) - sem svo myndar flóðbylgju.

Til fróðleiks eru hérna pælingar sem ég skrifaði um mögulegar hafnarbylgjur frá Austur Grænlandi.

Höskuldur Búi Jónsson, 11.3.2011 kl. 14:39

2 Smámynd: Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)

Mig langar bara til að benda á að til eru myndir með íslenskum skýringartexta hér

http://www.stjornuskodun.is/solkerfid/jordin#flekahreyfingar

http://www.stjornuskodun.is/solkerfid/jordin#flekamork

Það má nota þetta að vild.

Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is), 11.3.2011 kl. 15:46

3 identicon

Eftir að hafa horft á fréttirnar í vinnunni í allan dag á Sky News vöknuðu margar spurningar hjá mér með okkar land, s.s. sem „skjálfta þjóð“ eins og Japan. Góður fróðleikur hér á ferð :)

Maur á jörð (IP-tala skráð) 12.3.2011 kl. 02:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband