Rýnt í gömul og ný mánaðarmeðaltöl

Nú mun ég halda áfram þeirri súlna- og talnaleikfimi sem ég stundaði á síðasta ári en að þessu sinni ætla ég að skoða mánaðarmeðalhita í Reykjavík síðustu 10 ára og bera saman við tvö fyrri 30 ára viðmiðunartímabil. Hið fyrra eru gömlu hlýindin 1931-1960 og hið síðara er kalda meðaltalið 1961-1990 sem um leið er núverandi opinbert viðmiðunartímabil. Rauðu súlurnar standa fyrir síðustu 10 ár.
Til hægri eru fjórar súlur sem standa fyrir ársmeðalhita tímabilanna. Það er farið að styttast í að næsta 30 ára viðmiðunartímabil taki gildi en það mun taka mið af árunum 1991-2020. Græna súlan allra lengst til hægri sem segir til um hvernig staðan á því er nú, þegar 24 ár eru liðin af því tímabili.
Meðalhiti Rvik mánuðir
En þá er að skoða myndina. Þar má sjá að meðalhiti síðustu 10 ára er um 0,5 stigum hærri en meðalhiti hlýja 30 ára tímabilsins og 1,2 stigum hærri en meðalhiti kalda tímabilsins. En það leggst þó mismunandi á mánuðina. Mestu munar um hlýnunina fyrstu tvo mánuði ársins en auk þess er þá lítill munur er á hlýju og köldu 30 ára meðaltölunum. Síðustu 10 ár hafa svo áfram vinningin allt fram í ágúst en mjög litlu munar reyndar í maí. Kalda meðaltalið 1961-1990 er auðvitað oftast kaldast en hefur þó betur í febrúar gagnvart gömlu hlýindunum. Síðustu fjóra mánuði ársins er lítill munur á gömlu og núverandi hlýindunum, en munurinn sem þó er, er nútímanum í óhag. Greinilega hefur ekki verið mikið um hlýindi í október síðustu ár. Mætti kannski tala um sóknarfæri þar?

Nú mætti spyrja hvers vegna síðasti þriðjungur ársins (berjamánuðirnir) hafi ekki hlýnað umfram gömlu hlýindin. Ég kann ekki svarið við því, né heldur á því hvers vegna fyrstu tveir mánuðir ársins eru svona hlýir nú, miðað við gömlu hlýindin. Miðvetrarhlákur hafa oft gert vart við sig á síðustu árum en að sama skapi hefur oft haustað snemma með köldum norðanáttum undanfarin ár. Annars verður að hafa í huga að 10 ár er ekki mjög langt tímabil til viðmiðunar. Næstu 10 ár verða örugglega líka öðruvísi á einhvern hátt.

Það er heldur ekki alveg öruggt að næsta 30 ára viðmiðunartímabil (1991-2020) verði hlýrra en gamla hlýindatímabilið (1931-1960) þótt það sé á góðri leið. Næsta 30 ára tímabil verður allavega ekki eins hreint hlýindatímabil og það fyrra enda munar talsvert um árin 1992-1995 þegar árshitinn var að burðast við 4 gráðurnar. Árið 1995 var reyndar síðasta kalda árið í Reykjavík en þá var meðalhitinn ekki nema 3,8 stig.
- - - -

Þetta er auðvitað birt með fyrirvara um að rétt sé reiknað (sem ég reikna með að sé) en tölurnar til grundvallar eru af vef Veðurstofunnar.


Bloggfærslur 13. janúar 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband