Í hvað stefnir Reykjavíkurhitinn 2015?

Það hefur legið nokkuð ljóst fyrir að árið 2015 verður ekki með hlýjustu árum í Reykjavík eða yfirleitt á landinu. Fyrstu mánuðina var lítið um hlýindakafla í stíl við þá sem oft hafa komið að vetrarlagi og vormánuðirnir voru kaldir. Apríl og maí í Reykjavík voru báðir þeir köldustu það sem af er öldinni og maí reyndar sá kaldasti síðan 1979. Þegar svo júní bættist við sem rétt hékk í "kalda meðaltalinu" frá 1960-90 er ekki nema von að vangaveltur væru uppi hvort hlýindatímum hér á landi væri lokið, með snjóum fram á vor, kaldari sjó umhverfis landið og almennri vosbúð til sjávar og sveita. Sjálfur velti ég fyrir mér möguleikanum á mestu kólnun milli tveggja ára, hér í Reykjavík allavega, sem reyndar var ekki fjarri lagi í ljósi þess hve árið 2014 var hlýtt.

En þá er að skoða stöðuna nú þegar aðeins tveir mánuðir eru eftir af árinu. Þar kemur mánaðarhitasúluritið til sögunnar sem sýnir hvernig meðalhitinn í Reykjavík hefur þróast (fjólubláar súlur). Til viðmiðunar er meðalhiti mánaðanna síðustu 10 ár (rauðar súlur) og kalda opinbera meðaltalið 1961-1990 sem enn er í gildi (bláar súlur). Eins og sjá má hefur hitinn nokkuð tekið við sér þar sem fjórir síðustu mánuðir eru yfir kalda meðaltalinu og síðustu tveir mánuðir að auki yfir meðalhita síðustu 10 ára.

Meðalhiti Rvik 9 2015

Lengst til hægri á myndinni eru árshitasúlur og að venju sýna tónuðu súlurnar þar áætlaðan árshita 2015 eftir því hvort hiti síðustu mánaðanna verði í samræmi við kalda meðaltalið eða síðustu 10 ár. Þannig fást tölurnar 4,5° með því að reikna með tiltölulega köldu framhaldi og 4,7° með tiltölulega hlýju framhaldi. Báðar tölurnar eru ofan við meðalhita áranna 1960-90 en nokkuð fyrir neðan meðalhita síðustu 10 ára og jafnframt ljóst, ef þetta verður raunin, að árið verður það kaldasta af þeim 15 árum sem þá verða liðin af öldinni. Þó er ekki endilega útséð með það. Meðalhiti ársins 2013 var 4,9 stig og rétt rúmlega það en mér reiknast svo til að meðalhiti síðustu tveggja mánaða ársins þurfi að vera um 3,3 stig til að ná árinu 2013. Þeir mánuðir voru reyndar yfir því í fyrra vegna mikilla hlýinda í nóvember en annars er á talsverðan bratta að sækja.

Svo er spurning hvort hægt sé að tala um kalt ár þótt meðalhitinn verði 4,5-4,7 stig. Það yrði þó yfir opinbera viðmiðunartímabilinu, sem ég hef nefnt hér „kalda meðaltalið“. Meðalhiti þessarar aldar er hinsvegar um 5,5 stig og ef við segjum að það sé réttari meðalhiti og eitthvað sem er eðlilegt og komið til að vera, þá er þetta vissulega kalt ár, en tæplega annars.

 


Bloggfærslur 4. nóvember 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband