Skrikkjótt hegðun hafíssins á Norður-Íshafinu

Ég fylgist nokkuð náið með þróun hafíssútbreiðslunnar á Norður-Íshafinu. Það línurit sem mér finnst sýna þróunina sem næst rauntíma er að finna á íshafssíðum dönsku veðurstofunnar en þar má sjá útbreiðsluþróun hafíssins á þessu ári í samanburði við 5 síðustu ár. Það sem af er þessu ári hefur útbreiðslumynstrið verið dálítið sérstakt því eftir óvenjuöflugt vetrarhámark tók við mjög hröð bráðnun sem varð til þess að útbreiðslan í júní var sú minnsta en verið hefur áður, eða a.m.k. frá því nákvæmar mælingar hófust árið 1979. Þetta varð auðvitað til þess hinir og þessir voru jafnvel farnir að sjá fram á að útbreiðslan í haust yrði jafnvel minni en hún endaði haustið 2007, en það ár var algert metár.

Hafíslínurit 10. júní

Nú er hins vegar komið babb í bátinn því svo virðist sem útbreiðslan hafi ekkert dregist saman í nokkra daga og útbreiðslan komin yfir það sem hún var á sama tíma árið 2007 og farin að nálgast meðallag síðustu ára. Þetta sýnir kannski best hvað erfitt getur verið að spá fyrir um útbreiðsluþróun hafíssins til skemmri tíma. Þarna er líka svo margt sem spilar inní, lofthitinn segir t.d. ekki allt því vindar hafi þarna mjög mikil áhrif ásamt skýjafari. 

Íshafið 7. júní 2010Fram eftir þessu sumri gekk bráðnun hafíssins nokkuð fljótt fyrir sig, ekki síst á slóðum Hudson flóans við Kanada enda hafði veturinn þar verið frekar hlýr og það gæti skýrt að hluta hvers vegna heildarútbreiðslan minnkaði svona snemma framan af sumri. Nú er hinsvegar komið að því bræða hafssvæðin á sjálfu Norður- Íshafinu og virðist það ganga eitthvað skrykkjótt þessa dagana. Vindarnir virðast vera með þeim hætti að þeir blása ísnum aðallega umhverfis pólinn eða þannig að útbreiðslan eykst með einskonar skopparakringlu- áhrifum eða miðflóttaafli. Þetta virðist hinsvegar ekki verða til þess að ísinn sleppi í stórum stíl út um sundið milli Grænlands og Svalbarða en það er helsta útgönguleið hafíssins. Þeim hafís sem þar sleppur í gegn býður ekki annað en bráðnun þegar hann berst áfram suður eftir Grænlandi. Þessi áhrif voru mjög öflug sumarið 2007.

Ég mun auðvitað fylgjast áfram með þessu spennandi máli og skelli sjálfsagt inn fréttum af stöðu mála síðar í mánuðinum. Þetta hik sem er núna þarf ekki að vera til merkis um afdrifaríkan umsnúning. Það er t.d. alveg spurning hvort það hlýja loft sem núna er yfir Evrópu muni hafa áhrif alla leið norður að Íshafinu.

Kortið hér að ofan er frá Bandarísku hafísmiðstöðinni NSIDC og sýnir stöðuna þann 8. júlí.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband