Fína svifrykið og fínu dísilbílarnir

Á sama tíma og hratt hefur dregið úr sölu dísilbíla í Evrópu vegna skaðlegs útblástur þeirra virðist lítið vera að draga úr framboði nýrra dísilbíla hjá íslensku bílaumboðunum. Þetta á sérstaklega við svokallaða um sportjeppa og aðrar stærri gerðir bíla. Í sumum tegundum er einungis boðið upp á dísilvélar og almennt eru fleiri útfærslur í boði af dísilbílum af hverri tegund, heldur en af bensínbílum. Vilji maður til dæmis fá sér heiðarlegan, fjórhjóladrifinn, beinskiptan, bensínbíl, er víða afskaplega fátt í boði samanber þessi dæmi af verðlistum ónefndra bíltegunda.

Disilverdlistar

Eitthvað er þetta þó líklega að breytast. Suzuki-umboðið bíður t.d. einungis upp á bensínbíla í stað dísils og svo er stóraukin sala í þeim bílum sem ganga bæði fyrir rafmagni og bensíni. Vandamálið með dísilvélar er að í útblæstri þeirra er að finna mun meira magn af fínlegustu gerðum svifryks (PM2,5) sem einmitt er skaðlegasta gerð svifryks fyrir heilsu fólks. Sjá til dæmis hér: What is PM2,5 and why should you care?

PM2,5 eru það agnarsmátt ryk að líkaminn nær ekki að losa sig við það og því safnast það einfaldlega fyrir í líkömum fólks. Með bættri tækni hefur útblástur þessa fínryks frá dísilvélum að vísu lækkað á síðustu árum  en samt er hlutfall þess í nýlegri vélum að minnsta kosti tífallt það sem kemur úr bensínvélum. Auk þess gefa dísilvélar frá sér mun meira magn köfnunarefnisdíoxíðs NO2 sem getur valdið lungnaskjúkdómum auk þess að hafa skaðleg áhrif á gróður. Myndin hér að neðan er sýnishorn af mengunarmælingu frá Grensásvegi og kemur þar vel fram mikill mengunartoppur í síðdegisumferðinni við Grensásveg, föstudaginn 9. mars. sl. Sjá mengunarmælingar um allan heim hér: Real-time World Air Quality.

Svifryksmælingar
Sjálfsagt vissu menn ekki betur fyrir nokkrum árum en að dísilvélar væru umhverfisvænni en bensínvélar vegna lítillega minni útblástur koltvísýrings, CO2, sem auðvitað er hin fræga gróðuhúsalofttegund. Þannig gat allsherjar dísilbílavæðing með stuðningi stjórnvalda verið liður í baráttunni gegn hlýnun jarðar, eða að minnsta kosti fegrað tölur í kolefnisbókhöldum. CO2 er hinvegar ekki mengun á sama hátt fína svifrykið og NO2. Plöntur þrífast á CO2 og við öndum því frá okkur. Það er því kannski ekki mikið unnið með því að draga agnarögn úr hlýnun jarðar en fjölga um leið hjartveikum, heilabiluðum og lungnaveikum góðborgurum með skaðlegum agnarögnum í útblæstri. Og nú sitjum við uppi með stóran hluta bílaflotans knúinn þessum mengandi vélum og góð ráð dýr. Ekki vilja menn verðfella nýju fínu bílana sína með því að tala þá niður og það væri spælandi að þurfa að greiða sérstök refsigjöld fyrir bíla sem keyptir höfði verið í góðri trú með sérstökum ívilnunum stjórnvalda.

Talandi um mig sjálfan þá er ég keyrandi um á mínum fjórhjóladrifna bíl, beinskiptum og bensínknúðum. Sá bíll er kominn á fermingaraldurinn sem í bílaævi telst til efri ára og því ætti að vera komin tími á endurnýjun miðað við standardkröfur og svo eyðir hann heldur meira en nýrri týpur. Hann stendur þó fyrir sínu þótt hann skorti ýmislegt af þeim fítusum og átómötum sem sjálfsögð þykja í dag. Hann er þó búinn þeim eiginleika að geta lokað fyrir innstreymi utanaðkomandi lofts í farþegarýmið, sem er ákaflega gagnlegt þegar ekið er í  svifryksmóðu morgun- og síðdegisumferðarinnar.

Morgunsól

Miklabraut að morgni. Að þessu sinni var það reyndar sólin sem stal senunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Trausti Jónsson

Endurnýjaði bifreið fyrir tveimur árum - gekk lengi á milli umboða í leit að beinskiptum fjórhjóladrifnum bensínbíl - en heldur fátt var um fína drætti. Jú, sum umboðin sögðust geta sérpantað en það tæki 4 til 6 mánuði - önnur umboð vildu ekkert af slíku vita. Reynt var að tala bensín og beinskiptingu niður eins og mögulegt var - að vísu var það viðurkennt að þjóðverjar vildu bara svoleiðis - en þeir væru nú bara eins og þeir væru. Fékk að lokum nokkurn veginn réttan bíl - einmitt hjá Suzukiumboðinu. Hef jafnvel grun um að umboðin fái nú sjálfskipta díselbíla á góðum kjörum ytra og reyni að koma þeim út hér.

Trausti Jónsson, 15.3.2018 kl. 02:18

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Er fók búið að gleyma kvarðakútunum en þeir einmitt gera útblásturinn að örsmáum eindum og bæta við eyðsluna fyrir bragðið vegna þess að flestir þessir kótar stíflast og hafa prógramm sem eikur eldsneytið til að brenna úr þessum kútum. Heims vandamál sem vitað er um. Þeir sem hugsa fjarlægja þessa kúta.

Valdimar Samúelsson, 15.3.2018 kl. 12:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband