7.11.2011 | 18:28
Þegar loftslagsumræðan fer hamförum
Þó að ég sé almennt á því að við eigum að taka alvarlega því sem sagt er um loftslagsbreytingar, þá verður maður stundum dálítið undrandi hvað fjölmiðlar eiga það til að yfirkeyra hættuna meira en góðu hófi gegnir.
Eitt skýrasta þannig dæmi sem ég hef séð lengi er frétt í DV núna á mánudaginn 7. nóvember. Þar er vitnað í Sigga storm Ragnarson og því slegið upp með stóru letri að: Smáralind færi á kaf. Undirfyrisögnin er: Skýrsla sameinuðu þjóðanna spáir hamförum í veðri - Yfirborð sjávar mun að öllum líkindum hækka um sex metra - Sjávarlóðir gætu orðið einskis virði. Í texta sem tekin er út sérstaklega til áherslu segir síðan: Við erum að tala um næstu tvær eða þrjár kynslóðir sem munu horfa upp á þetta. Þú gætir upplifað þessa breytingu á meðan þú lifir.
Nú er ég reyndar ekki alveg með á hreinu hvað hér er átt við með tveimur til þremur kynslóðum en ef þetta gæti gerst á meðan ég eða þú lifum þá er greinlilega verið að tala um 40-100 ár miðað við barnseignaraldur fólks. Allavega þá er það alveg öruggt að sjávarborð er ekki að fara að hækka um sex metra á næstu áratugum og ekki heldur á næstu 100 árum. Um þessar mundir er talið að sjávarborð hækki um 3 mm ári að meðaltali sem þýðir 30 cm á öld. Sú hækkun hefur verið skrikkjótt og hefur reyndar verið enn minni allra síðustu ár. Hækkunin mun þó eitthvað aukast, en spá um hækkun sjávarborðs samkvæmt hinum óskeikula vef loftslag.is er um 35 cm fyrir árið 2050 ef heldur fram sem horfir. Óvissan er þó talin mikil. En 6 metra hækkun sjávarborðs með þeim hræðilegu afleiðingum að Smáralindin færi á kaf jafngildir bráðnun alls Grænlandsjökuls. Það mun hins vegar ekki gerast fyrr en eftir margar aldir í fyrsta lagi eða jafnvel eftir einhver þúsund ár og þegar það gerist verður hvort sem er löngu búið að afskrifa Smáralindina vegna aldurs og veðrunar nema hún fari í varðveisluflokk sem merk gömul bygging.
Okkar litli Vatnajökull er ekki nálægt því að hverfa á þessari öld en hugsanlega smájöklar eins og Snæfellsjökull, en það er allt önnur saga og hefur vægari afleiðingar. Sigurður Stormur talar líka um jökulinn á Suðurskautslandinu og bendir réttilega á að ef sá jökull hyrfi í hafið yrðu afleiðingarnar mun alvarlegri, en klikkir síðan út með því að segja að sú þróun gæti tekið nokkrar aldir. Nokkrar aldir? spyr ég og svara sjálfur: Jökullinn á Suðurskautslandinu mun ekki hverfa á næstu öldum, heldur í fyrsta lagi eftir 1000 ár ef hann mun þá yfirhöfuð hverfa áður en næsta jökulskeið leggst yfir. En ekki eru allir sammála um allt. Sumir segja að jöklar séu ekkert að hverfa og ekkert að hlýna í heiminum og svo þurfum við kannski ekkert að hafa áhyggjur af bráðnun jökla því sagt er að sjálf endalokin verði í pólskiptunum ógurlegu undir lok árs 2012.
Á Rás2 sama morgun.
Ég gæti líka fjallað um dálítið loftslagstal sem ég heyrði á Rás2 í morgun. Þar voru þau Andri Freyr og Gunna Dís að undrast yfir þessu hlýja veðri og snjóleysinu hér ásamt flóðum og öðru veseni út í heimi. Andri vildi meina að aðalorsakavaldurinn þarna væru spreybrúsarnir sem hún notar á hárið sitt. Hún benti hinsvegar á að hann sjálfur ætti meiri þátt í eyðingu ózonlagsins með því aka um á bíl og flokka ekki rusl.
Já, umhverfisógnin getur verið margþætt og snúin. Fólk má auðvitað alveg tala um mengun og loftslagsvandann þótt það sé ekki sérfræðingar í fræðunum. En fólk verður að passa sig á því að fara ekki hamförum og rugla ekki vandamálum saman. Jafnvel þótt það vilji vera sniðugt.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Takk fyrir góðan pistil Emil. Þar kemur allt fram sem máli skiptir. Mjög skilmerkilegt.
Ágúst H Bjarnason, 7.11.2011 kl. 18:52
Mín athugasemd við DV fréttina var svona:
Ég vil bæta við að þegar maður les eitthvað eins og birtist í DV þá hugsar maður - gott að einhver skuli fjalla um loftslagsmál - slæmt að þetta skuli vera svona mikið bull.Höskuldur Búi Jónsson, 7.11.2011 kl. 19:34
Sensationalisminn neyðir mann til að deila nokkrum sinnum í upphrópanir blaða tila að fá svona nokkurnvegin óbrenglaða mynd eða jafnvel til að komast að því hvort málið er issue yfirleytt. Ég man þegar að ég horfði fyrst á mynd Al Gore, þá skellti ég nokkrum sinnum uppúr yfir ofboðslegheitunum og blatant hræðsluáróðrinum. Eftir hana var ég sanfærður um að það lægju ekki par heilbrigðir hagsmunir að baki GW trúboðinu.
Ekki misskilja mig þó að ég er alveg sannfærður um að einhverjar miklar breytingar eru að eiga sér stað í loftstraumum jarðar, það hef ég séð með eigin augum á Grænlandi og á jöklum hér heima. Það er óþarfi að ofselja þær til að réttlæta frakari skattpíningu á almenning og hækkun orkuverðs.
Mér finnst þetta hálfgerður farsi, satt að segja, þótt hann sé soldið macabre á köflum.
Jón Steinar Ragnarsson, 7.11.2011 kl. 19:53
Inntak fjölmiðla á öllum sviðum má súmmera upp í eina setningu:
"Be afraid, be very afraid."
Jón Steinar Ragnarsson, 7.11.2011 kl. 20:04
Að gefnu tilefni höfum við á loftslag.is endurbirt færslu á loftslag.is um sjávarstöðubreytingar - Sjá Spurt og svarað um sjávarstöðubreytingar
Þar stendur meðal annars:
Höskuldur Búi Jónsson, 7.11.2011 kl. 20:12
Annars eru þær margar ógnirnar sem steðja að okkur hér á jörðu. Sumar þeirra geta verið vanmetnar og aðrar ofmetnar og svo eru líka ógnir sem við höfum ekki ennþá uppgötvað.
Ef neikvæð áhrif loftslagsbreytinga eru til staðar þá held ég að þau komi ekki fram að fullu fyrr en eftir okkar daga og gætu alveg orðið mjög alvarleg. Hætt er við að lítið muni verða gert til að draga úr útblæstri fyrr en það verður of seint enda yfirleitt ekki tekið á málum fyrr en þau verða að alvöru vandamáli.
Sumir veðja á ýkju- og æsifréttastílinn til að vekja fólk til umhugsunar, en slíkt virkar oft öfugt. Það átti allavega við mig þegar ég sá fréttina í DV.
Emil Hannes Valgeirsson, 7.11.2011 kl. 23:56
Mig langar að koma smá vangaveltum að...
Að mínu mati þá er vandamálið við fréttir eins og þá á DV, að þær geta virkað öfugt á fólk (eins og Emil kemur inn á), þar sem nokkuð auðvelt er að hrekja það sem verandi ýkjur (þó eitthvert sannleikskorn kunni að vera í þeim ýkjum). Það má einnig segja að það sé auðvelt að sumu leiti að hrekja málatilbúnað "efasemdamanna", en í því tilfelli virðist tendensinn hjá fólki stundum vera að trúa þeim efnistökum eins og nýju neti, enda kannski hægt að orða það svo, að um þægilegar "lygar" sé að ræða... S.s. fólk getur verið fljótt að ýta ýkjum frá sér ef þær eru óþægilegar (og stimpla hugsanlega sumt annað í umræðunni sem ýkjur líka, að mínu mati), en virðist oft á tíðum trúa þægilegum málatilbúnaði "efasemdamanna" af því að það virðist geta hjálpað upp á sálartetrið hjá þeim sem vilja ýta loftslagsvandanum úr huga sér...
Sveinn Atli Gunnarsson, 8.11.2011 kl. 10:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.