18.11.2007 | 11:05
Horft til Esjunnar
Ég hef alltaf getað séð til Esjunnar þaðan sem ég hef búið, þar til fyrir nokkrum árum er ég fluttist á Víðimelinn í Vesturbænum en það bjargar þó málunum að frá vinnustaðnum er gott útsýni til Esjunnar. Ef ég væri ljóðskáld væri ég örugglega búinn að yrkja heilmikið um Esjuna, en í stað þess hef ég margoft ljósmyndað hana, teiknað hana, lesið um hana og gengið á hana frá hinum ýmsu hliðum. Auðvitað er Esjan aldrei eins frá degi til dags en með því að horfa til hennar má spá í veðrið og tíðarfarið. Til að geta fylgst með Esjunn á sunnudagsmorgni sem þessum kemur vefmyndavél Veðurstofunnar mér til bjargar en þaðan er myndin hér að neðan einmitt fengin, tekin kl. 10.30 í morgun. Þarna má sjá fyrstu sólargeislana leika um Esjuhlíðar sem eru hvítar eftir snjókomu í norðanátt gærdagsins. Það er sjálfsagt kalt þarna uppi en gott veður að öðru leyti. Hver veit nema ég muni standa þarna uppi á efstu brún í dag? (Viðbót að kvöldi dags: Að sjálfsögðu var farið upp, sjá albúm)
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 21:58 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.