16.3.2008 | 15:58
Á Vífilsfelli
Já, það var ekki mjög slæmt að vera staddur á toppi Vífilsfells núna fyrr í dag. Lognið kom úr öllum áttum, sólin skein af öllu afli og fjallakyrrðin allt að því ærandi. Á myndinni má sjá þann sem þetta skrifar en það var ferðafélagi minn Harri sem tók myndina. Bláfjöllin skarta sínu fegursta þarna í baksýn en þar hefur sjálfsagt verið meira margmenni á ferð og á meiri ferð. Þetta var ágætis æfing fyrir stærri átök sem eitthvað er verið að spá í.
Athugasemdir
Frábær mynd. Ég öfunda alltaf fólk sem getur gengið á fjöll. Sökum bakslæmsku get ég gengið niður - en ekki upp! Auk þess sem lofthræðsla hrjáir mig gríðarlega við slíkar aðstæður.
Lára Hanna Einarsdóttir, 17.3.2008 kl. 01:03
Mér varð hugsað til þín þegar ég fékk þennan póst í dag af því þú vinnur í auglýsingabransanum:
Check this web site out below, its quite clever the way its been designed.
HEMA is a Dutch department store. The first store opened on 4th November
1926, in Amsterdam. Now there are 150 stores all over the Netherlands. HEMA
also has stores in Belgium, Luxembourg, and Germany.
In June of last year, HEMA was sold to British investment company Lion
Capital.
Take a look at HEMA's product page. You can't order anything and it's in
Dutch but just wait a couple of seconds and watch what happens.
Don't click on any of the products pictured, just wait and see what happens.
And be sure you have your sound turned up, although you might want to have
your headphones on! Don't worry, it's not dirty or anything but it is clever.
http://producten.hema.nl/
Lára Hanna Einarsdóttir, 17.3.2008 kl. 21:48
Takk fyrir HEMA-síðuna, var að kíkja á hana. Það er alltaf hægt að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt í auglýsingum og kúnstin er bara sú að láta sér detta það í hug.
Emil Hannes Valgeirsson, 17.3.2008 kl. 22:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.