14.5.2008 | 14:39
Hestöflin eru farin að kosta sitt
Enn ein hækkunin á bensínverði leiðir hugann að því hvort við þurfum að fara að hugsa okkar gang varðandi bílaflotann sem hefur þanist út í magni og stærð í undangengnum góðærum. Hvað með öll hestöflin sem fara í að knýja alla þessa jeppa á götum borgarinnar? Jeppar eru auðvitað ekkert annað en torfærubílar og eyðslufrekir eftir því en eru aðallega notaðir í daglegt innanbæjarsnatt á malbikuðum götum borgarinnar og innihalda oftast bílstjórann einan. Er stöðutáknið kannski orðið að tákni um orkusóun nútímamannsins? Dæmigerður miðlungsfínn jeppi er 165 hestöfl sem jafngildir auðvitað afli 165 hesta. Það þætti nú örugglega dálítið skondið að sjá mann mæta til vinnu á vagni sem dreginn er af 165 hestum og einhver gæti talið að hægt væri að komast af með minna.
Verðhækkun hjá N1 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Viðskipti og fjármál | Aukaflokkar: Lífstíll, Samgöngur | Breytt 30.7.2008 kl. 17:08 | Facebook
Athugasemdir
Fleiri hestavagna. Það yrðu sko stöðutákn. Eiga ekki allir jeppaakandi plebbar minnst einn hest hver? Það væri tilvalið.
Ásgrímur Hartmannsson, 14.5.2008 kl. 14:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.