1.5.2010 | 18:05
Öskuland á gervitunglamynd
Á gervitunglamynd NASA frá því í dag, þann 1. maí, má enn sjá greinilegt öskuský stefna í suðaustur frá landinu. Þetta er sjálfsagt ekki eins mikið og þegar mest var enda mun stöðug hraunframleiðsla samtímis vera í gangi.
Ísland er nú að verða frægt fyrir sína öskuframleiðslu og ef henni linnir ekki gæti verið stutt í að landið verði kallað Ashland. Hver vill ekki fara þangað? Við sem hér búum förum þó vonandi ekki úr öskunni í eldinn.
Askan getur enn truflað flug | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 18:13 | Facebook
Athugasemdir
Flott mynd
Gunnar Th. Gunnarsson, 1.5.2010 kl. 19:57
Er Wishland ekki alveg ágætt nafn? Skárren Iceland sem allir eru farnir að hata.
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 1.5.2010 kl. 20:56
Það er enginn farinn að hata ísland. Síður en svo. Og þeir sem hata það skulu bara halda sig í hæfilegri fjarlægð
anna (IP-tala skráð) 1.5.2010 kl. 21:35
Samkvæmt áræðanlegum heimildur hatar guð Ísland sjá:
http://www.landoverbaptist.net/showthread.php?s=aecb738815a652aebf88a010370179e7&t=37299&highlight=Introduction
Bjössi (IP-tala skráð) 1.5.2010 kl. 22:00
Ég er ekki hissa þótt einhverjir öfgamenn haldi að Ísland sé uppspretta hins illa. En svo þekkja þeir ekki muninn íslenska og norska fánanum! Við getum þó alltaf huggað okkur við að olíumengunin við Bandaríkjastrendur verður ekki rakin til okkar.
Emil Hannes Valgeirsson, 1.5.2010 kl. 22:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.