30.7.2008 | 22:28
Gervitunglamynd af landinu á hitametsdegi
Á þessum merkisdegi er alveg ómögulegt annað en að þessi mynd af landinu okkar birtist. Þetta er MODIS gervitunglamynd og ekki annað hægt að segja en að landið hafi skartað sínu fegursta. Léttskýjað er víðast hvar á landinu nema norðvestanlands þar sem þokan hefur læðst inn flóa og firði og inn eftir dölum. Þessi dagur kemst auðvitað á spjöld Íslandssögunnar fyrir það að þá fór hitinn íReykjavík í fyrsta sinn yfir 25 gráður samkvæmt opinberum mælingum ásamt ýmsum öðrum hitametum sem slegin voru sunnan- og vestanlands. Nýja hitametið fyrir Reykjavík er sem sagt 25,7 gráður, sett síðdegis þann 30. júlí 2008 og sló út fyrra metið sem var 24,8 gráður frá því skömmu fyrir hádegi hins 11. ágúst árið 2004.
Rétt áður en þessi færsla var vistuð bárust fréttir af þrumuveðri suðaustanlands sem væntanlega kemur úr skýjaþykkninu sem þarna sést skammt undan landi. Þetta munu vera kuldaskil sem bera með sér dálítið svalara loft.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkur: Veður | Breytt 15.12.2008 kl. 11:20 | Facebook
Athugasemdir
Flott mynd. Ég er ekki frá því að ég sjái stærðarmun á jöklunum. Getur það verið?
Lára Hanna Einarsdóttir, 30.7.2008 kl. 22:59
Veit ekki alveg hvað þú átt við með stærðarmun, en jöklarnir eru óhreinir við sporðana svona um hásumarið og renna því saman við landið í kring og sýnast því kannski minni en þeir eru. Það sjást líka vel þarna á jöklunum skilin á milli gráu leysingarsvæðana og hvítu svæðanna með óbræddum vetrarsnjónum. En hvar þessi skil liggja hverju sinni skiptir auðvitað máli í sambandi við jöklabúskapinn.
Emil Hannes Valgeirsson, 30.7.2008 kl. 23:50
Ég er nú eiginlega bara að meina svona miðað við Íslandskortið sem ég er með uppi á vegg hjá mér. Þetta er sjálfsagt vitleysa í mér - maður á eiginlega ekki að sjá þetta með berum augum og svo er samanburðurinn kannski ósanngjarn.
En þetta er rétt sem þú segir, skilin eru mjög greinileg milli gráu og hvítu svæðanna.
Lára Hanna Einarsdóttir, 31.7.2008 kl. 00:56
En jöklarnir hafa nú vissulega verið að minnka, sérstaklega á síðustu 10 árum þannig að það er alveg í dæminu að hægt sé að sjá mun á milli landakorta og svona ljósmynda.
Emil Hannes Valgeirsson, 31.7.2008 kl. 10:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.