5.12.2009 | 22:54
Nokkur misjafnlega mislæg gatnamót
Þó að Reykjavík sé ekki fjölmenn borg má þar finna mikil umferðarmannvirki. Mislæg gatnamót er til í ýmsum útgáfum og þau geta verið miseinföld eða -flókin. Stundum hafa óvanir ökumenn farið flatt á því að misskilja fráreinarnar eða aðreinarnar og farið norður og niður í staðinn fyrir út og suður. Sem er ekki gott. Hér á eftir koma nokkur dæmi um mislæg gatnamót á höfuðborgarsvæðinu og víðar.
Einfaldasta gerð mislægra gatnamóta er væntanlega þessi tegund, sem má finna á Arnarneshæð þar sem Arnarnesvegur liggur um brú yfir Hafnarfjarðarveg. Þessi gatnamót taka lítið landrými en við sitt hvorn brúarendann eru umferðarljós, stundum eru þar hringtorg ef pláss leyfir.
- - - - -
Höfðabakkabrúin er öllu stærri um sig enda mikil umferð úr öllum áttum. Almennt er útfærslan á vinstri beygjum helsti munurinn á mislægum gatnamótum. Hér eru vinstri beygjurnar látnar skerast uppi á brúnni og ein allsherjar umferðarljós stjórna umferðinni þar. Umferð um Vesturlandsveg fer óhindruð undir brúna en Höfðabakkaumferðin þarf að hinkra eftir vinstri-beygju-bílunum. Misjafnt er hvort hægri-beygju-bílar þurfi að stoppa á ljósum. Hér er eins gott að fá ekki víðáttubrjálæði uppi á brúnni og týna ekki akreininni sinni.
- - - - -
Tveggja slaufu gatnamót þar sem Réttarholtsvegur fer yfir Miklubraut og verður að Skeiðarvogi. Þegar kemur að þessari gerð gatnamóta fara málin að flækjast því þeir sem ætla að beygja til hægri inn á Miklubraut þurfa að stoppa á ljósum og beygja til vinstri inn á slaufu sem leiðir þá inn á Miklubraut áður en þeir koma að brúnni. Þeir sem hinsvegar ætla til vinstri og inn á Miklubraut þurfa ekkert að stoppa á ljósum og fara rakleiðis til hægri inn í slaufuna. Samskonar gatnamót eru þar sem Miklabrautin verður að Hringbraut (áður Miklatorg).
- - - - -
Niðri við Elliðavog erum við svo með elstu mislægu gatnamótin í Reykjavík og einu fullkomnu fjögurra-slaufu-gatnamót landsins. Hér er ekkert verið að spara landrýmið enda eru slaufurnar feiknastórar. Umferðin rennur hindranalaust í allar áttir því að allar vinstri beygjur fara um slaufurnar og hægri beygjurnar liggja þar utan með. Þetta eru þar með einu mislægu gatnamótin á landinu þar sem hægt er að bruna í gegn ofan brúar sem neðan án hindrunar af umferðarljósum eða hringtorgum.
- - - - -
Hér erum við komin út fyrir landsteinanna og til hinnar miklu bílaborgar Los Angeles. Þar má finna þessa gerð af gatnamótum þar sem öll umferðin gengur hindranalaust fyrir sig en í stað slaufa eru vinstri beygjurnar á sér hæðum þannig að alls eru fjórar hæðir á gatnamótunum. Neðst eru tvær vinstri beygjur, síðan bein hraðbraut, tvær vinstri beygjur þar fyrir ofan og efst er hin hraðbrautin. Með þessu sparast heilmikið landrými miðað við slaufugatnamót en mannvirkið er mikið.
- - - - -
Þessa flækju sem einnig er í Los Angeles ætla ég ekki að reyna að útskýra en hætt er við að einhver utanbæjarmaðurinn fari villur vegar í þessu völundarhúsi. Lífið er ekki alltaf einfalt.
- - - -
Læt þetta duga að sinni en er þó að hugsa um að halda áfram í bílaleik í næstu færslu sem verður þó með allt öðru sniði.
Loftmyndirnar eru fengnar af kortavef ja.is og google maps
Athugasemdir
Sá einmitt svona spagettý junction út í atlanta, þar voru amk 4 hæðir, en þar mættust 400 og I285. Þar var eins gott að lesa vel á GPS-inn sinn :)
Annars finnast mér gatnamannvirki á íslandi oftast mjög flókin og allt of algengt að þú þufir að beygja til vinstri til að komast til hægri osfv.
Svo virðast menn hafa óendanlega gaman af því að allir fari í einhverjar slaufur þegar það er einfaldara að tengja annarsstaðar inn á hringtorgið og þú gætir farið beint.
Dæmi um slíkt rugl er hringtorgið við kirkjugarðinn í hafnarfirði, þar er fínt tún sem hefði getað verið frárein og aðrein, en í stað þess eru fráreinar og aðreinar slaufur, ekki gott fyrir þá sem svimar auðveldlega.
Svo næ ég heldur ekki þessari hringtorgaráráttu, fékk einhver verkfræðingur sirkil í ljólagjöf ? :)
Emil (IP-tala skráð) 6.12.2009 kl. 00:43
Öll íslensku gatnamótin sem þú sýnir hér að ofan eru klúðursleg. Meira að segja þau í Elliðaárdalnum. Þar var verið að spara í plási og slaufurnar eru ekki hringlaga heldur með ýmsumbeygjum. Það hefur valdið slysum á fólki. Það er í raun ótrúlegt að skoða svona gatnamót á höfuðborgarsvæðinu. Til að mynda á Reykjanesbrautinni frá Elliðaárdalsslaufuverkinu og í suður. Allt suður að álverinu í Straumsvík eru 15 gatnamót, öll eru þau tiltölulega nýleg en ENGIN þeirra eru eins. Þau lýkjast ekki einu sinni hvert öðru. Svona hringlandaháttur í gatnagerð er slysavaldur.
Gleðileg Jól :)
Birgir Þór Bragason, 6.12.2009 kl. 20:25
Mis-klúðursleg er þau hugsanlega. En ég er sammála þessu með ósamræmið í skipulagi gatnamótanna. Ég hefði líka viljað birta mynd af alveg nýrri gerð mislægra gatnamóta hér á landi sem eru hringtorgs-gatnamótin þar sem Arnarnesvegur mætir Reykjanesbrautinni, en þau eru í byggingu á myndinni á kortavef ja.is.
Emil Hannes Valgeirsson, 6.12.2009 kl. 21:33
Mér finnst einfaldlega erfitt að keyra þar sem ég er ekki kunnugur. Það eru ekki bara mislæg gatnamót sem eru klúðursleg heldur er hringtorgum og allskyns gatnamótum og stubbum hent útum allt skipulagslaust og ekkert samræmi í neinu.
Sæmundur Bjarnason, 7.12.2009 kl. 01:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.