2.1.2010 | 23:20
Veðrið í Reykjavík 2009
Þessa fyrstu bloggfærslu mína á árinu ætla ég að tileinka veðrinu í Reykjavík á liðnu ári og skoða hvernig veðurgæðum hefur verið háttað fyrir hvern mánuð. Fyrir þá sem ekki vita, þá skrái ég mjög samviskusamlega veðrið fyrir hvern dag í Reykjavík og gef hverjum degi einkunn út frá veðurþáttunum fjórum: sólskini, úrkomu, vindi og hita. Hver dagur getur fengið einkunn á bilinu 0-8 og út frá því reikna ég meðaleinkunn hvers mánaðar sem gjarnan er á bilinu 4 til rúmlega 5. Mánuðir sem fá lægri einkunn en 4 teljast vera slæmir veðurmánuðir en allt fyrir ofan 5 er mjög vel sloppið.
Myndin hér að neðan sýnir veðurfarslega einkunn fyrir hvern mánuð í Reykjavík árið 2009. Til viðmiðunar eru gráu súlurnar sem sýna meðaleinkunn viðkomandi mánaðar öll þau ár sem ég hef skráð veðrið.
Veðrið í Reykjavík á árinu var gott í heildina. Júlímánuður sker sig þó úr enda fékk hann hæstu einkunn sem ég hef gefið nokkrum mánuði í þau 23 ár sem ég hef staðið í þessum skráningum. Sumarmánuðirnir júní-ágúst fengu einnig samanlagt bestu einkunn sem ég hef gefið þeim mánuðum, auk þess sem nóvember sló öðrum nóvembermánuðum við í veðurgæðum. Ekki nóg með það því árið í heild dúxaði og fékk einkunnina 4,79 og sló þar með út árið 2006 sem besta árið samkvæmt þessu einkunnarkerfi. Enginn mánuður telst vera slæmur. September og október fengu lökustu einkunnirnar og kannski heldur verri einkunn en þeir eiga skilið en í þessum mánuðum voru nokkuð slæmir veðurkaflar sem drógu meðaleinkunnina niður.
Hér á eftir kemur veðuryfirlit fyrir eintaka mánuði. Einkunnargjöfin er í sviga:
Janúar (4,5): Hlýtt í upphafi mánaðar en síðan breytilegt hitafar. Snjór var á jörðu seinni hlutann en aldrei mikill. Loftþrýstingur var mjög lágur þrátt fyrir mikinn þrýsting í fólki þarna á dögum búsáhaldarbyltingarinnar.
Febrúar (4,5): Kuldakast í upphafi mánaðar og bjart veður með hvítri jörð. Síðan hlýtt og blautt um miðjan mánuð. Kaldasti dagur vetrarins var 4. febrúar þegar var um 8 stiga frost, en þann 16. var kominn 8 stiga hiti.
Mars (4,8): Gott og bjart veður framan af og snjór á jörðu. Mjög hlýtt um tíma um miðjan mánuð en kólnaði aftur undir lokin með björtu veðri.
Apríl (4,7): Yfirleitt hlýtt í mánuðinum. Bjart og gott um Páskana (12. og 13.) og vikuna þar á undan. Gott veður á kosningadaginn þann 25. en rigningasamt og hvasst vikuna þar á undan.
Maí (4,9): Mjög breytilegt veður fyrri hlutann og hvasst með köflum. Upp úr miðjum mánuðinum gerði mikla sumarblíðu með mjög björtu og hlýju veðri. Skúrasamt undir lokin.
Júní (5,1): Nokkuð gott veður allan mánuðinn þó að hitinn hafi ekki þótt hár. Hlýnaði þó mikið undir lokin í þungskýjuðu hægviðri.
Júlí (5,8): Eindæma góður veðurmánuður í borginni. Mjög sólríkt og þurrasti júlí frá 1889. Hlýtt yfirleitt nema í kuldakastinu sem gekk yfir landið dagana 23.-25. Hitinn komst annars tvisvar í 21 stig.
Ágúst (5,2): Yfirleitt allgott sumarveður. Kærkomnar rigningar öðru hvoru en annars oftast bjart og hlýtt.
September: (4,2): Lengst af frekar milt. Hægviðri framan af en síðan úrkomusamt og hvasst. Það haustaði skart með hvössum útsynningi með slydduéljum þann 26. og snjóaði í fjöll. Sólin lét lítið sjá sig í mánuðinum.
Október (4,1): Mjög kalt framan af og fyrsti snjórinn í borginni féll þann 5. en stóð stutt. Óveður með austan stormi og rigningu gerði þann 9. Eftir það var hlýtt, breytilegt og sólarlítið veður.
Nóvember (5,1): Þægilegar austanáttir ríkjandi. Lengst af vel hlýtt þar til alveg í lokin þegar tók að frysta.
Desember (4,9): Mjög tvískiptur mánuður með hlýindum fyrri hlutann. Rigningar dagana 9.-12. Köld en björt norðanátt dagana fyrir jól en síðar hægari. Snjór á jörðu allra fyrstu og síðustu dagana.
- - - - -
Fyrir veðursama er hér meira um veðurskráningar mínar og sitthvað sem ég hef skrifað um veðrið á árinu:
Hversu gott var góðviðrið í júlí?
Gæðamat á sumarveðrum 1987-2009, súlurit
Einnig er sjálfsagt að vísa í veðuryfirlit fyrir landið í heild á vef Veðurstofunnar (hér) og á bloggsíðu Einars Sveinbjörnssonar (hér).
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkur: Veður | Facebook
Athugasemdir
Afbrag að fá þetta. Ég varð reyndar fyrir vonbrigðum með kuldakastið í júlí því allt stefndi í methlýjan júlí og það hefði hann orðið ef hitinn í kuldakastinu hefði skrimt í meðallagi.
Sigurður Þór Guðjónsson, 4.1.2010 kl. 13:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.