Hversu slæmt var veðrið í apríl?

Snjókoma apríl

Áður en ég kem að því hversu slæmt veðrið var í apríl (hafi það yfirhöfuð verið slæmt) þá finnst mér ég fyrst þurfa að gera smá grein fyrir veðurskráningunum mínum sem staðið hafa í tvo og hálfan áratug enda veit ég aldrei hversu vel kunnugir lesendur eru þeim. Ég skrái semsagt hjá mér veðrið í Reykjavík hvern dag með myndrænum hætti og tölum sem eiga að lýsa hinu dæmigerða veðri yfir daginn hverju sinni. Útfrá þessum skráningum gef ég hverjum degi einkunn á kerfisbundinn hátt en þar er einfaldlega gengið út frá því að hiti sé betri en kuldi, sólskin betra en sólarleysi, hægviðri betra en hvassviðri og þurrviðri betra en úrkoma. Allir þessir fjórir veðurþættir hafa svipað vægi í einkunnagjöfinni. Hver veðurþáttur getur fengið 0-2 stig, þannig að algóður dagur getur mest fengið 8 stig en alsæmur 0 stig. Hver mánuður fær síðan sína einkunn útfrá meðaltali allra daga mánaðarins. Það telst gott ef mánaðareinkunn er yfir 5 stigum en afleitt ef mánuður nær ekki 4 stigum.

Apríl 2011Skráning apríl 2011

Nýliðinn aprílmánuður fékk samkvæmt þessu skráningar- kerfi einkunnina 3,7 stig sem telst eiginlega vera falleinkunn en sjálfsagt í ágætu samræmi við upplifum flestra borgarbúa.

Hér til hliðar er veðurskráningin. Aftasti dálkur eru einkunnir, aftan við vindörvarnar er hiti dagsins og tákn sem segja hvort dagurinn telst vera í meðallagi hlýr (þríhyrningur), hlýr (hringur) eða kaldur (ferningur). ATH. Myndin birtist stærri ef smellt er á hana.

Í mánuðinum skráði ég aðeins einn alvöru sólskinsdag og nokkra hálfa. Úrkomudagarnir voru hinsvegar margir og úrkoman oft ansi lárétt enda var þetta mjög vindasamur mánuður með þrálátu skúra- og éljaveðri úr suðri- eða suðvestri. Það góða var þó að hitinn var vel yfir meðallagi og í góðu samræmi við meðalhita aprílmánaða síðustu ára. Mánuðinum lauk með snjókomu og hvítri jörð eftir kaldasta dag mánaðarins.

Tvo merkisatburði hef ég skráð til hliðar. Þann 9. var Icesave-kosningin undarlega sem kannski var bara stormur í vatnsglasi en daginn eftir kom alvöru stormur og fékk sá dagur 0 stig í skráningunni sem er mjög sjaldgæft. Dagurinn hefði reyndar átt að fá 1 stig vegna hita í meðallagi en það stig strokaðist út vegna stormsins sem gaf eitt mínusstig sem neikvætt öfgatilfelli.

Nokkrir góðir aprílmánuðir til samanburðar:

Apríl 1998 - Einkunn 5,4. Þetta er mjög góð einkunn og sú hæsta sem aprílmánuður hefur fengið hjá mér. Mánuðurinn er kannski ekki mjög eftirminnilegur en var góður á alla kanta og tók þetta eiginlega á seiglunni án þess að slá nokkur met.
Apríl 2008 - Einkunn 5,3. Mjög svipaður mánuður og apríl 1998 með alla veðurþættina góða. Þurr, hlýr sólríkur og hægviðrasamur mánuður.
Apríl 2000 - Einkunn 5,1. Þessi mánuður er eftirminnilegur vegna feiknamikils sólskinskafla dagana 14.-25. apríl sem gerði þetta að sólríkasta apríl í Reykjavík sem mælst hefur. Hinsvegar var hitinn ekki mikill og kaldari apríl hefur ekki mælst síðan. Eðlilega var lítið um úrkomu í svona mánuði þannig að á mælikvarða gróðurs var þetta ekki óskamánuður. Einkunnakerfi þessu er reyndar alveg sama um það.
Apríl 2001, 2003 og 2005 - Einkunn 5,0. Hér má minnast á apríl 2003 vegna þess að það er hlýjasti apríl sem mælst hefur í Reykjavík og víða um land. Aðrir veðurþætti voru hinsvegar nærri meðallagi í Reykjavík. Dálítið athyglisvert er að köldustu dagar mánaðarins voru fyrsti og síðasti dagurinn, nánast allir aðrir dagar voru mildir eða hlýir.

Og sá versti:

Apríl 1987 - Einkunn 3,6. Þetta er fyrsti skráði aprílmánuðurinn hjá mér og sá sem enn situr uppi með lægstu einkunnina. Nýliðinn aprílmánuður er reyndar sá eini sem hefur náð að ógna þessum frá Mbl 3.maí 19871987. Veðrið var reyndar ekki ósvipað og í ár og mánuðirnir eiga ýmislegt sameiginlegt. Mikill óstöðugleiki var með tíðum útsynningséljagangi en þó var öllu kaldara 1987. Síðasta vikan var sérlega éljasöm og hvöss og alveg í lokin stökk lægð yfir Grænlandsjökul sem olli mikilli snjókomu síðasta kvöld mánaðarins og fram á nóttina þannig að snjódýptarmet var sett fyrir maímánuð í Reykjavík morguninn eftir. Sá mikli snjór bráðnaði þó hratt í ört rísandi 1. maí-sólinni (sjá meðfylgjandi frétt úr Mbl. 3. maí 1987). Snódýpin að morgni 1. maí 1987 mældist 17 cm en til samanburðar mældist hún nú í ár 16 cm að morgni 1. maí, ekki munar miklu.

Almennt að lokum

Það er hægt að hafa misjafnar skoðanir á því hverskonar veður eru góð eða slæm en miðað við þær forsendur sem ég gef mér er þetta niðurstaðan. Veðrið eins og það var í Reykjavík núna í apríl er ekki vinsælt meðal fólks og ekki það vorveður sem fólk gerir sér vonir um. Sé farið lengra aftur í tímann má kannski finna verri aprílmánuði og marga harðindalegri. Veðurminni fólks er upp og ofan og því má segja um nýliðinn apríl að hann hafi allavega verið verri en yngstu menn muna og jafnvel einnig hinir eldri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ekki efa ég að skrámningarkefi þitt leiði til þessarara einkunar. Ég get samt ekki stillt mig um að gera athugasemdir. Að mínum dómi er sólskinsmánuðurinn skaðvænlegi apríl 2000 miklu verri en þessi  sem var að líða. Það er ekki hægstætt í mínum huga að fá slíkan skrufþurran sólskinskafla með miklum frostum í apríl. Sól út af fyrir sig þarf ekki endilega að vera jákvætt fyrirbæri og verður að meta í ljósi annars, sérstaklega snemma vors og á haustin. Það var aldeilis munur á vorkomunni 2000 og núna. Margir aprilmánuðir einkennast af norðanáttum með margra daga köflum syðra þar sem jafnvel hlánar ekki þrátt fyrir glaðasólskin en aðrir mildari dagar eru líka en fyrir norðan er þá hreint vetrarrríki. Stundum eru líka sjnóar liggjandi á jörð syðra samfelld í einhverja daga. Núna var varla hægt að tala um slíkt þó stundum væru él eða slydda smástund sem varla festist og snjódýpt fór aldrei yfir 1 cm. Nú kom ekki eitt einasta norðanáttakast með kuldum. Ég er mjög harður á því, hvað sem skráningarkerfi þitt leiðir i ljós, að aprílmanuðir með þessum sígildu björtum kuldaköstum og oft liggjandi snjó en skárra á milli séu miklu óagstæðari og verri  en apríl þar sem varla fraus og varla hægt að tala um snjó. Það er í mínum huga alveg fráleitt að líta á þann apríl sem var að líða sem einn af verri aprílmánuðum, hvar sem er á landinu. Hann var leiðinlegur en mjög margir aprílmánuðir hafa verið miklu veri á margan hátt. Margt fleira mætti segja um þetta en ég nenni því ekki núna.

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.5.2011 kl. 13:16

2 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ókey. Það má svosem taka það fram að þetta einkunnakerfi var upphaflega búið til fyrir sumarmánuði en ég ákvað síðan að nota það óbreytt fyrir allt árið. Umhleypingasamir, sólarlitlir og úrkomusamir mánuðir fá oftast slæma einkunn þótt þeir séu nokkuð hlýir. Þessi apríl var óvenju hvassviðrasamur og úrkomumikill í borginni og mér finnst þessi einkunn vera í góðu samræmi við það sem fólki hefur fundist um veðrið í Reykjavík en þessar skráningar miða bara við þann stað. Það má ekki gera lítið úr því sem fólki finnst. Þegar talað er um hagstætt tíðarfar er oft miðað við gróður og þarfir bænda, sem skiptir svosem máli en ég læt það samt ekki áhrif á þennan mælikvarða.

Emil Hannes Valgeirsson, 1.5.2011 kl. 14:00

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Eftir reynsluna af þessum arpríl finnst mér það vera mjög umhugsunarvert hvers konar veðurlag það er sem fólki finnst helst vera vorveður.

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.5.2011 kl. 15:24

4 Smámynd: Trausti Jónsson

Emil: Ég þakka athyglisverða pistla. Hvað sem má segja um lága einkunn aprílmánaðar að þessu sinni er aðalatriðið að þú haldir háttum við einkunnagjöf óbreyttum. Gott væri ef fleiri tækju upp ámóta skráningu að sínum smekk og það sem allra fyrst.

Trausti Jónsson, 2.5.2011 kl. 00:53

5 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Já, málið er að hafa allt í föstum skorðum og halda í einfaldleikann. Svo geta menn haft sínar skoðanir á niðurstöðum.

Emil Hannes Valgeirsson, 2.5.2011 kl. 12:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband