9.2.2008 | 12:08
Hvít kúlnahríð við sjávarsíðuna
Vopnaður myndavél fór ég í morgun niður að sjónum við Eiðsgranda. Ég átti von á því að eftir óveður gærkvöldsins gæti verið flottur öldugangur þarna sem gaman væri að ljósmynda en það sem stal hins vegar senunni var haglél mikið sem skall þarna skyndilega á. Þá var ekkert annað að gera en að setja upp leifturljósið á myndavélinni, smella af og útkoman var þessi þegar blossinn lýsir upp kúlnahríðina.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkur: Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:29 | Facebook
Athugasemdir
Skemmtileg mynd. Blotnaði ekki myndavélin við þetta?
Lára Hanna Einarsdóttir, 9.2.2008 kl. 13:30
Flott mynd !
Ágúst H Bjarnason, 9.2.2008 kl. 15:52
Tek fram að hvorki ljósmyndari né myndavél hlutu skaða af við gerð þessarar myndar.
Emil Hannes Valgeirsson, 9.2.2008 kl. 17:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.